

Hjúkrunarfræðingur óskast á húsvaktir
Viltu vera partur af frábæru teymi?
Við á Mörk hjúkrunarheimili erum að bæta við þann góða hóp hjúkrunarfræðinga sem er starfandi við heimilið. Um er að ræða húsvaktastöðu þar sem starfshlutfall og vinnutími fer eftir samkomulagi.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í líflegu og heimilislegu starfsumhverfi.
Greitt er eftir kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
- Góð íslenskukunnátta
Mörk hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu sem Eden heimili. Á heimilinu er unnið metnaðarfullt starf þar sem heimilismenn og starfsfólk vinnur saman að því að skapa öruggt og heimilislegt umhverfi og rík áhersla er lögð á sjálfsákvörðunarrétt heimilismanna og þátttöku þeirra.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Íris Benediktsdóttir, mannauðsstjóri
Sími 530-6164
Við hlökkum til að heyra frá þér!











