Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efra-Breiðholti

Vilt þú verða hluti af öflugum hópi starfsmanna?

Heilsugæslan í Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Við erum að leita að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni. Ef þú ert að leita að starfi þar sem enginn dagur er eins þá hvetjum við þig til þess að sækja um.

Heilsugæslan í Efra-Breiðholti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Megin starfssvið er skólaheilsugæsla í Fellaskóla (um 300 nemendur) ásamt almennri móttöku á heilsugæslustöð. Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
  • Við erum með móttöku sem sinnir fólki á öllum aldri, sinnum bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf. Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem eru ekki bráð s.s. sárameðferð og heilsueflandi móttöku. Um er að ræða skemmtilegt starf í fjölmenningarlegu samfélagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Þekking og áhugi á heilsueflingu og forvarnarstarfi
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Stytting vinnuvikunnar
Auglýsing birt21. nóvember 2023
Umsóknarfrestur4. desember 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hraunberg 6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar