Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunardeildarstjóri

Vilt þú koma í okkar frábæra lið?
Við óskum eftir að ráða deildarstjóra hjúkrunar. Um er að ræða 26 íbúa deild. Deildinni er skipt í 3 litlar og heimilislegar einingar, ein eining er ætluð sérstaklega fyrir heilabilaða.
Við bjóðum upp á:
* Gæðavottað starfsumhverfi
* Teymisvinna
* Krefjandi, gefandi og spennandi verkefni
* Skemmtilegan og faglegan samstarfshóp
* Heimilislegt vinnuumhverfi
* 100% dagvinnustarf
* Sveigjanlegan vinnutíma
* 36 klst. vinnuvika
Droplaugarstaðir er hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og aðstandenda í öndvegi.
Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa, starfsfólks og aðstandenda.
Íbúar eru 81 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi.
Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.

Menntunar- og hæfniskröfur
* Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
* Góð íslenskukunnátta
* Góð hæfni í mannlegum samskiptum
* Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
* Reynsla af stjórnun æskileg
* Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
* Skipuleggur og stýrir hjúkrun og daglegu starfi deildarinnar.
* Skipuleggur mönnun deildarinnar samkvæmt mönnunarmódeli, sér um gerð vaktaáætlana og hefur umsjón með vinnuskilum starfsfólks.
* Ber ábyrgð á að starfað sé eftir þeim verklagsreglum og vinnuleiðbeiningum sem í gildi eru á Droplaugarstöðum.
* Ber ábyrgð á hjúkrunaráætlunum fyrir íbúa deildarinnar og fylgist með að skráning sé í samræmi við faglega ábyrgð.
* Ber ábyrgð á skipulagningu og skráningu í RAI mat íbúa deildarinnar.
* Vinnur samkvæmt gæðakerfi Droplaugarstaða.
Auglýsing birt3. júní 2021
Umsóknarfrestur21. júní 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Snorrabraut 58, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar