
Hestamannafél. Sörli óskar eftir starfskrafti í hlutastarf
Hestamannafélagið Sörli leitar eftir starfskrafti í hlutastarf til að sinna fjölbreyttum verkefnum. Í boði er hlutastarf sem getur aukist þegar ný reiðhöll kemur í fullan rekstur. Viðkomandi starfar með framkvæmdastjóra félagsins og undir hans leiðsögn.
Starfslýsing
Aðstoð við félagshús
Viðhald og rekstur á eigum félagsins, innan dyra sem utan.
Tengsl og aðstoð varðandi viðburði á vegum félagsins eftir því sem þurfa þykir
Önnur tilfallandi verkefni
Vinnutími er sveigjanlegur og getur oft verið í samræmi við tilfallandi verkefni
Í boði er hlutastarf sem getur aukist þegar ný reiðhöll kemur í fullan rekstur. Viðkomandi stafar með framkvæmdastjóra félagsins.
Starfskröfur
Starfsmaðurinn verður að geta unnið sjálfstætt og vera útsjónarsamur og laghentur
Vinnuvélaréttindi og reynsla af vinnu á traktorum
Félagsleg færni og sveigjanleiki
Hreint sakavottorð

