
Golfklúbbur Kiðjabergs
Golfklúbbur Kiðjabergs er í Grímsnesi í Árnessýslu og var stofnaður 1993. Völlurinn liggur með bökkum Hvítár sem rennur meðfram nokkrum brautum vallarins.
Félagafjöldi 2022 er um 430 manns.

Helgarstarf í sumar – Afgreiðsla og móttaka | Golfklúbbur Kiðjaberg
Við leitum að brosmildu og skemmtilegu starfsfólki í afgreiðslu og móttöku Golfklúbb Kiðjabergs. Við leitum að starfsfólki í helgarvinnu fyrir sumarið 2026. Flott fyrir þá sem vilja ná sér í aukna vinnu.
Við leggjum áherslu á að skapa góða upplifun og veita gestum okkar góða þjónustu.
Starfið felur í sér samskipti við gesti og meðlimi klúbbsins og er því afar mikilvægt að umsækjendur hafi góða færni í samskiptum, jákvætt viðmót og ríka þjónustulund.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og afgreiðsla gesta og meðlima Golfklúbbs Kiðjabergs.
- Umsjón með afgreiðslu.
- Umsjón og umhirða golfbíla og leigu þeirra.
- Samskipti við gesti.
- Samskipti og svörun síma og tölvupósts.
- Samskipti vegna rástímabókana.
- Tryggja góða upplifun og framúrskarandi þjónustu.
- Aðstoð við mótahald.
- Önnur tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góða færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Reynsla af sambærilegum störfum.
- Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Umsækjandi þarf að hafa bílpróf.
- Umsækjandi skal hafa hreint sakavottorð og vera reyklaus.
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur29. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kiðjaberg 168257, 801 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sumarstarf í móttöku - Student Hostel
Student Hotel

Þjónustustöð N1 Akureyri leitar að liðsauka í sumar
N1

Lager
Vatnsvirkinn ehf

Sumarstörf í Básum
Ferðafélagið Útivist

Sumarstarf í Lyfjaval á Selfossi
Lyfjaval

Lager Útideild
Vatnsvirkinn ehf

Afgreiðsla í verslun og samfélagsmiðlar.
Allt í köku ehf.

Móttaka/ Miðasala Jökulsárlón
Jökulsárlón Ferðaþjónusta ehf.

Sumarstarf sala og þjónusta
ÍslandsApótek

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Helgar og kvöld starfsfólk í Afgreiðslu - Tokyo sushi Glæsibæ
Tokyo Sushi Glæsibær

Móttökuritari á Patreksfirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða