
S4S - Ellingsen
Ellingsen var stofnað árið 1916 af Othar Ellingsen og var meginhlutverk fyrirtækisins sérhæfing í sölu á veiðarfærum og öðru því sem tengdist útgerð, en í seinni tíð eða frá árinu 1990 var áherslum í verslun breytt í að selja útivistarvörur.
Árið 2017 keypti S4S ehf verslun Ellingsen og síðan þá hafa orðið miklar breytingar á versluninni.
Ellingsen er í dag útivistaverslun fyrir alla fjölskylduna þar sem fólk getur gengið að góðri þjónustu og vöruúrvali. Rafhjólasetur Ellingsen var opnað árið 2020 og fer ört stækkandi.
Verslanir Ellingsen eru í Reykjavík, á Akureyri auk vefverslunarinnar www.ellingsen.is.
Hjá S4S starfa um 180 manns og hefur fyrirtækið margoft hlotið viðurkenningu VR sem fyrirmyndavinnustaður auk þess að hafa verið valið fyrirtæki ársins. Þá hefur S4S fengið viðurkenningu Creditinfo um fyrirmyndarfyrirtæki árlega undanfarin ár.

Helgarstarf í Ellingsen
Viltu vinna í einni skemmtilegustu útivistarvöruverslun landsins?
Við leitum af metnaðarfullum og duglegum helgarstarfskrafti í Ellingsen í Reykjavík. Ellingsen býður upp á mikið úrval af hágæða vörum frá flottum vörumerkjum sem henta allri útivist.
Vinnutími er aðra hvora helgi með möguleika á meira starfi. Vinna á virkum dögum er einnig í boði eftir samkomulagi. Starfið hentar mjög vel með námi.
Umsækjendur þurfa að hafa áhuga á útivist og reynsla af verslunarstörfum er kostur. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst og tali góða íslensku. Umsóknir skal senda í gegnum vef Alfreðs.
Hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.
Menntunar- og hæfniskröfur
Stundvísi
Metnaður
Dugnaður
Heiðarleiki
Góð íslensku kunnátta
Reynsla af útivist æskileg
Helstu verkefni og ábyrgð
Afgreiðsla í verslun
Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
Áfylling á vörur
Almenn verslunarstörf
Auglýsing birt4. ágúst 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fiskislóð 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðMetnaðurReyklausSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaStundvísiTeymisvinnaÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Nettó Hrísalundi - umsjón
Nettó

Kjörbúðin Akureyri - hlutastarf
Kjörbúðin

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

Söluráðgjafi í grófvöru til fagaðila
Byko

Sölu- og ferðaráðgjafi
Iceland ProTravel

Vaktstjóri á þjónustuborð í fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Dagvinna í Ísbúð Huppu
Ísbúð Huppu

FERÐASKRIFSTOFA Ferðaráðgjafi
Eskimos Iceland

CityHost (receptionist)
CityHub Reykjavik

Sölufulltrúi
BEWI

Áfylling í verslanir og almenn lagerstörf.
TINNA heildverslun