Skólar ehf
Skólar ehf
Skólar ehf

Heilsuleikskólinn Skógarás Reykjanesbæ

Heilsuleikskólinn Skógarás á Ásbrú auglýsir eftir fagfólki í stöðu deildarstjóra og/eða leikskólakennurum eða uppeldismenntuðu starfsfólki fyrir skólaárið 2021-2022.

Heilsuleikskólinn Skógarás er sjálfstætt starfandi og staðsettur í Reykjanesbæ. Skólinn er fjögurra deilda með um 80 börn, 23 starfsmenn og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur og viðmiðum Heilsueflandi leikskóla. Í stefnu skólans er lögð rík áhersla á jákvæða og umhyggjusama skólamenningu og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Unnið er með heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti, læsi og stærðfræði, frjálsan leik, umhverfismennt, snemmtæka íhlutun í mál- og hreyfiþroska, með áherslu á jákvæðan skólabrag.

Því leitum við að samstarfsfólki sem:

  • Er tilbúið að tileinka sér stefnu og starfsaðferðir skólans.
  • Er samvinnufúst og hefur góða hæfni í samskiptum.
  • Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun.
  • Er stundvíst, samviskusamt, jákvætt, sýnir frumkvæði og hefur ánægju af því að vinna með ungum börnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Kennararéttindi eða önnur háskólamenntum sem nýtist í starfi.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg.
Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagsfærni.
Frumkvæði og ábyrgð í starfi.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
ÍSAT verkefnastjóri 50%
Sérkennari 50%
Leikskólakennari á deild
Deildarstjóri
Fríðindi í starfi
Stytting vinnuvikunnar
Viðverustefna
sveigjanlegur vinnutími og /eða viðvera
Auglýsing birt17. mars 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skógarbraut 932, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar