
Leikskólinn Reykjakot
Leikskólinn Reykjakot er staðsettur í afar fallegu umhverfi í Mosfellsbæ. Lögð er áhersla á leik barna, málrækt,sköpun og náttúru/umhverfi. Reykjakot er 5 deilda og þar eru 85 börn. Sjá nánar á heimasíðu skólans: https://mos.is/reykjakot

Hefur þú gaman af því að leika, skapa og vinna með börnum?
Leikskólinn Reykjakot í Mosfellsbæ leitar að áhugasömu og jákvæðu starfsfólki í hlutastarf. Við erum sveigjanleg varðandi starfshlutfall og leitum að fólki sem getur unnið hluta úr degi eða ákveðna daga í viku, eftir samkomulagi. Starfið gæti því hentað vel með námi.
Í Reykjakoti leggjum við áherslu á leik, lýðræði, samskipti, útiveru og nám í gegnum leik. Við viljum fá til liðs við okkur fólk sem hefur áhuga á að vinna með börnum, er tilbúið að taka þátt í daglegu starfi og vill læra og þróast með okkur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni
- Taka þátt í leik og daglegu starfi með börnum
- Styðja við börn í leik, samskiptum og námi
- Taka þátt í útiveru og fjölbreyttum verkefnum
- Vinna í samstarfi við annað starfsfólk
- Stuðla að öryggi, vellíðan og góðri upplifun barna
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að þér sem
- Ert 18 ára eða eldri
- Hefur góða íslenskukunnáttu
- Hefur áhuga á að vinna með börnum
- Ert jákvæð/ur, ábyrg/ur og stundvís
- Átt auðvelt með samskipti og samvinnu
- Hefur áhuga á leikskólastarfi og ert tilbúin/n að taka þátt í fjölbreyttu starfi
Reynsla af starfi með börnum er kostur en ekki skilyrði.
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort
- Starfsmannaafsláttur á leikskólagjöldum í leikskólum Mosfellsbæjar
- 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar sem eru 10 á ári.
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Krókabyggð 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniKennslaMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiTeymisvinnaUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Spennandi starf í frístund í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Skemmtileg störf á frístundaheimili í Breiðholti
Frístundamiðstöðin Miðberg

Skemmtileg störf á frístundaheimili í Breiðholti
Frístundamiðstöðin Miðberg

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel

Leikskólaliði / leiðbeinandi
Leikskólinn Vinaminni

Leikskólinn Eyrarskjól - Leikskólakennari/Leiðbeinandi
Hjallastefnan leikskólar ehf.

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli

Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Hraunsel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Stuðningsfulltrúi í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

Frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Sundþjálfari
Ungmennafélagið Stjarnan