Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Hefur þú brennandi áhuga á menningu og markaðsmálum?

Starf kynningar- og markaðsstjóra menningarmála í Kópavogi er laust til umsóknar. Um er að ræða frábært tækifæri fyrir menningarsinnaðan og markaðsdrifinn einstakling til að hafa áhrif á menningarþátttöku í næststærsta bæjarfélagi landsins.

Menningarkjarninn í Kópavogi á engan sinn líka á landsvísu. Kjarninn samanstendur af Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu og Salnum. Þar hefur öflugt teymi starfsfólks byggt upp lifandi og spennandi menningarvettvang sem árlega laðar að sér um þrjú hundruð þúsund gesti. Framundan eru spennandi tímar með aukinni samþættingu menningarstarfsins með áherslu á að auka enn frekar aðdráttarafl þess.

MEKÓ stendur fyrir fjölbreyttri viðburða- og hátíðardagskrá og auk þess dagskrá fyrir skólahópa og almenning í því skyni að styrkja bæjarbraginn, auka víðsýni og örva samfélagið í heild sinni.

Í starfinu felst ábyrgð á að kynna og markaðssetja hina viðamiklu og spennandi dagskrá sem unnin er undir merkjum MEKÓ. Starfsmaðurinn veitir forstöðumönnum menningarhúsanna einnig ráðgjöf um kynningar- og markaðsmál. Starfið er unnið í nánu samstarfi við forstöðumann menningarmála, verkefna- og viðburðastjóra menningarmála ásamt forstöðumönnum menningarhúsanna.

Um er að ræða skapandi og krefjandi starf með mörgu af reyndasta menningarstarfsfólki landsins. Leitað er að hugmyndaríkum og jákvæðum einstaklingi sem býr yfir reynslu, þekkingu og brennandi áhuga á menningar- og markaðsmálum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Menntun á sviði lista og/eða menningar er kostur
Umtalsverð reynsla af kynningar- og markaðsmálum
Góð þekking og reynsla af stafrænni markaðssetningu og miðlun á samfélagsmiðlum
Þekking eða reynsla af starfsemi innan menningarstofnunar er kostur
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Skapandi og lausnamiðuð nálgun
Jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni
Geta til að vinna undir álagi og í fjölbreyttum verkefnum á sama tíma
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð
Stjórn og yfirumsjón með markaðs- og kynningarmálum MEKÓ
Umsjón og þróun stafrænnar miðlunar og - markaðssetningar
Yfirumsjón með heimasíðu og samfélagsmiðlum MEKÓ
Samskipti við fjölmiðla, hönnuði og hagsmunaaðila
Markaðssetning gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum
Gerð rekstrar- og starfsáætlunar og eftirfylgni hennar
Auglýsing birt6. júlí 2023
Umsóknarfrestur31. júlí 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar