

Hefur þú áhuga á að byggja upp einstaka verkfræðistofu ?
Ný og öflug verkfræðistofa leitar eftir kröftugu og metnaðarfullu fagfólki til framtíðarstarfa. Starfsemi hefst 1. febrúar 2024.
Leitað er eftir fagfólki á sviði byggingartækni, sjálfbærni og innivistar.
Verkefnastjórnun, ástandsúttektir, rakaskimun, rakamæling, sýnataka, loftgæðamælingar, ráðgjöf og eftirlit með framkvæmdum.
Menntunarkröfur: verkfræði, tæknifræði, byggingafræði, líffræði, iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Verkreynsla af þessum sviðum er æskileg: hönnun, húsasmíði, ástandsskoðun, rakaskimun, rakamælingum, sýnatökum, loftþéttleikamælingum, eftirliti eða verkefnastjórn með framkvæmdum og endurbótum.
Reynsla, þekking eða áhugi á eftirfarandi er kostur; loftgæðum, loftskiptum, umhverfisvottunum, LCA greiningum og orkunotkun mannvirkja.
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.
Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
Við bjóðum upp á heilsueflandi vinnustað, fjölskylduvænt, sveigjanlegt, hvetjandi og jákvætt vinnuumhverfi með möguleika á fjarvinnu þar sem allir fá tækifæri til að þróast faglega og vinna í teymi.
Íslenska
Enska










