
Aurora hár ehf.
Aurora Hár ehf er hátísku hársnyrti- og hárlengingarstofu staðsett á Urðartorgi í Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í hágæða hárlengingum, litun, klippingum og hárþjónustu sem sniðin er að þörfum hvers og eins.

Hársnyrtir & Barber 💈
Við hjá Aurora Hár ehf., glæsilegri hárgreiðslu stofu á Skyggnisbraut 15, Urðartorgi, 113 Reykjavík, bjóðum nú upp á tækifæri fyrir metnaðarfulla hársnyrta.
Stofan er staðsett í Urðartorgi, í 2. stærsta hverfi höfuðborgarsvæðisins, með ört vaxandi þjónustu og frábæru aðgengi.
👩🎨 Við bjóðum:
- Stólaleigu í faglegu og nútímalegu rými
- Möguleika á verktakasamstarfi
- Umhverfi sem leggur áherslu á gæði, metnað og jákvæðan starfsanda
Við leitum að einstaklingum sem hafa ástríðu fyrir faginu og vilja þróast í skapandi og kröfuhörðu umhverfi.
✨ Hvort sem þú vilt stólaleigu eða vinna sem verktaki – þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita faglega hárþjónustu (klippingar, litun, hársnyrting og/eða hárlengingar eftir sérhæfingu).
- Taka á móti viðskiptavinum með jákvæðu og vingjarnlegu viðmóti.
- Viðhalda hreinu og snyrtilegu vinnusvæði.
- Sjálfstæð vinnubrögð – sinna eigin bókunum og daglegu skipulagi.
- Meta þarfir viðskiptavina og veita persónulega ráðgjöf.
- Halda fagmennsku og gæðum að leiðarljósi í öllum verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fagmenntun í hársnyrtingu og gilt sveins-/meistarabréf.
- Reynsla í hársnyrtingu og þjónustu talið mikill kostur.
- Áhugi á að þróa sig áfram í starfi.
- Góð samskiptafærni og snyrtimennska.
- Ábyrgð, sjálfstæði og jákvæðni í starfi.
Fríðindi í starfi
- Lágur stofnkostnaður og sveigjanlegar leiguleiðir.
- Aðgangur að hágæða vörum og tækjum.
- Sterk markaðssetning Aurora Hár sem styður við þína viðskiptavini.
- Stórt rými fyrir starfsaðstöðu
- Netpantanakerfi.
- Fallegt og bjart vinnuumhverfi sem laðar að nýja viðskiptavini.
Auglýsing birt12. september 2025
Umsóknarfrestur27. september 2025
Laun (á mánuði)1 - 2 kr.
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Skyggnisbraut 10, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HárgreiðslaHárlitunHársnyrting
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)