Stekkjaskóli
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli

Grunnskólakennari

Grunnskólakennari - kennsla nemenda með íslensku sem annað tungumál

Óskað er eftir grunnskólakennara frá og með 15. janúar 2023 eða eftir nánara samkomulagi. Kennarinn mun kenna nemendum sem eru með íslensku sem annað tungumál. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum kennara sem hefur brennandi áhuga á fjölmenningu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklinga
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags
  • Vinnur samkvæmt viðmiðun um kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál
  • Undirbýr kennsluáætlanir og einstaklingnámskrár í samstarfi við umsjónarkennara
  • Umsjón með nemendateymum barna með íslensku sem annað tungumál
  • Situr mótttökuviðtöl og sér um stöðumat nemenda skv. móttökuáætlun sveitarfélagsins
  • Samskipti við foreldra og túlkaþjónustu

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð   
  • Hæfni og áhugi á skólastarfi
  • Brennandi áhugi á fjölmenningu og kennslu nemenda af erlendum uppruna
  • Sérhæfing/reynsla af kennslu barna með íslensku sem annað tungumál kostur
  • Góð enskukunnátta, vegna samskipta við túlkaþjónustu
  • Góð tölvukunnátta
  • Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
  • Áhugi fyrir teymiskennslu og teymisvinnu
  • Góð færni í mannlegum samskiptum 
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt22. desember 2023
Umsóknarfrestur8. janúar 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Heiðarstekk 10
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar