
Grund hjúkrunarheimili
Grund hjúkrunarheimili var stofnað árið 1922 og því elsta starfandi hjúkrunarheimili á Íslandi. Grund hjúkrunarheimili er hluti af Grundarheimilunum en þar starfar stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.
Markmið Grundarheimilanna er að vera eftirsóttur vinnustaður þar sem vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.

Grund - Iðjuþjálfi óskast til starfa
Grund hjúkrunarheimili óskar eftir metnaðarfullum iðjuþjálfa til starfa.
Starfshlutfall og vinnutími eftir samkomulagi. Greitt er eftir kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Hæfnikröfur
- BSc próf eða sambærilegt próf í iðjuþjálfun
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
- Íslenskukunnátta skilyrði
Vellíðan, virðing og vinátta er höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Sigrún Faulk, hjúkrunarframkvæmdastjóri
Við hlökkum til að heyra frá þér !
Auglýsing birt26. maí 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hringbraut 50, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



