
Heimar
Við sköpum nútímalega, sjálfbæra borgarkjarna sem nærast á drifkrafti mannlegra samskipta
Heimar er fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði á Íslandi. Félagið er hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð í Kauphöll Íslands.
Starfsfólk starfar á fimm starfsstöðvum við fjölbreytt störf og hefur starfsánægja aldrei mælst hærri. Með því að leggja áherslu á velferð og öryggi starfsfólks ásamt jafnrétti, mannréttindum, jöfnum launum kynja, heilsuvelferð og þekkingaröflun starfsfólks trúum við því að Heimar sé góður og eftirsóknarverður vinnustaður.

Grafískur hönnuður
Heimar og Smáralind leita að grafískum hönnuði sem hefur gaman að því að takast á við fjölbreytt verkefni og blómstrar í hröðu og lifandi umhverfi.
Ef þú ert jákvæður, skipulagður og hugmyndaríkur einstaklingur sem vill hafa áhrif á hvernig Heimar, leiðandi fasteignafélag og vörumerki þess, þar á meðal Smáralind, birtast og þróast, þá gætir þú verið akkúrat sá liðsfélagi sem við erum að leita að.
Heimar er fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði í Íslandi. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands. Meðal vörumerkja félagsins er Smáralind, Hafnartorg, Egilshöll og Gróska.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð markaðs- og kynningarefnis fyrir fjölbreytta miðla s.s. stafræna miðla, prentmiðla, innanhússfleti og almenna auglýsingamiðla
- Þróun hugmynda og lausna í samstarfi við markaðsteymi og önnur svið innan fyrirtækisins
- Samskipti við auglýsingastofu, vefstofur, prentsmiðjur, merkingaraðila og aðra samstarfsaðila
- Aðstoða við ýmis verkefni í tengslum við markaðstengda viðburði
- Vera hluti af kröftugu teymi sem vinnur í hröðu umhverfi að fjölbreyttum verkefnum og ber ábyrgð á ásýnd og ímynd vörumerkja Heima og Smáralindar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi menntun í grafískri hönnun (Ekki aðeins stök námskeið)
- Starfsreynsla sem grafískur hönnuður
- Góð kunnátta á öll helstu Adobe forrit - Illustrator, Photoshop, In design, Premiere og After Effects.
- Reynsla í gerð hreyfigrafík og videovinnslu fyrir samfélags- og skjámiðla
- Góð þekking á prentferlum og frágangi prentgagna
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og þjónustulund
- Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og drifkraftur
- Þekking á vefhönnun og stafrænni markaðssetningu er kostur
Auglýsing birt21. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Adobe IllustratorAfter EffectsHreyfihönnunKlippivinnaLitvinnslaNotendaupplifun (UX)PrentmiðlarSkjámiðlarUmbúðahönnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


