
MARS MEDIA
Miklu meira en bara stafræn markaðsstofa!
MARS MEDIA aðstoðar fyrirtæki við birtingar á innlendum og erlendum miðlum, markaðsráðgjöf og efnissköpun í allri sinni mynd. Grafísk hönnun, hreyfihönnun, ljósmyndun, myndbandagerð og fleira.
Við leggjum mikinn metnað og vinnu í að þjónusta okkar viðskiptavini, vera skrefinu á undan og leyfa framkvæmdargleði okkar að skína - enda orðspor MARS MEDIA fyrir frábæra þjónustulund og góð samskipti orðið þekkt.
MARS MEDIA hefur unnið með fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum, bæði hérlendis og erlendis síðan 2019.
Starfsfólk okkar skiptir okkur miklu máli og við leggjum mikinn metnað í að öllum líði vel í vinnunni. Við leggjum mikið upp úr því að hafa góða vinnuaðstöðu og sér sjúkraþjálfari á okkar vegum til þess að vinnuaðstaðan þín sé til fyrirmyndar og gefur góð ráð varðandi líkamsstöðu.
Við skiljum mikilvægi þess að eiga gott samspil milli fjölskyldu og vinnu og reynum við því að hafa sveigjanleika í fyrirrúmi.

Skapandi leiðtogi í hönnun - Grafískur hönnuður
Ertu með metnaðinn og þörfina fyrir að búa til eitthvað sem fólk staldrar við og skoðar?
Við hjá MARS erum að leita að skapandi leiðtoga í hönnun.
Á MARS færðu listrænt frelsi til að leiða hönnunarstarfið okkar, móta ásýnd fjölbreyttra vörumerkja í samstarfi við viðskiptavini okkar og hafa raunveruleg áhrif á það hvernig hlutirnir líta út.
Lifandi og skapandi vinnuumhverfi þar sem hönnunarverkefnin eru eins fjölbreytt og þau eru mörg.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun á efni til birtinga á erlendum- (META + Google) og innlendum miðlum.
- Hugmyndavinna og framkvæmd hönnunar af ýmsum toga.
- Eftirfylgni og yfirsýn verkefna.
- Vinna með hreyfigrafík.
- Eftirvinnsla myndbanda (tilfallandi).
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi menntun í grafískri hönnun eða sambærilegt.
- 2+ ára reynsla við hönnunarstarf.
- Góð færni á Adobe - Photoshop, Illustrator, After Effects, InDesign, Lightroom.
- Reynsla á Figma. Alm. hönnun og vefhönnun.
- Sjálfstraust til að ræða beint við viðskiptavini MARS.
- Góð þjónustulund og frábær mannleg samskipti.
-
Skipulagshæfileikar og drifkraftur.
- Jákvæðni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð - Við höfum gaman af því að láta hlutina gerast.
- Framúrskarandi vald á íslensku í töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi
- 7 tíma vinnudagur.
- Niðurgreiddur hádegismatur.
- Frí á afmælisdaginn þinn - Þetta er þinn dagur 🥳
- Íþróttastyrkur.
- Frábær vinnuaðstaða.
Kostir
- Við elskum metnaðafulla einstaklinga sem koma stjórnendum á óvart með skemmtilegum hugmyndum!
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur26. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bæjarhraun 8, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Adobe IllustratorAfter EffectsAuglýsingagerðFigmaHreyfihönnunInDesignPhotoshop
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)

