Borealis Data Center ehf.
Borealis Data Center ehf.

Gjaldkeri (50% starf)

Við leitum að öflugum gjaldkera til starfa á fjármálasviði félagsins. Um er að ræða 50% starf í alþjóðlegu umhverfi. Starfið heyrir undir aðalbókara og felur í sér ábyrgð á skilvirkri og öruggri framkvæmd daglegra greiðslna og sjóðstýringar, stuðningi við innheimtu og góðri yfirsýn yfir lausafjárstöðu félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast daglega framkvæmd greiðslna og tryggja að þær fari fram á réttum tíma og í samræmi við samþykkt verklag.
  • Fylgjast með sjóðsstöðu, greiðsluflæði og gjalddögum.
  • Undirbúa greiðsluáætlanir og lausafjárupplýsingar fyrir fjármálastjóra.
  • Fylgja eftir samþykki reikninga og hafa samskipti við banka vegna greiðslna og annarra bankaviðskipta.
  • Annast innheimtu viðskiptakrafna og eftirfylgni með vanskilum í samstarfi við viðskiptavini og stjórnendur.
  • Svara fyrirspurnum viðskiptavina vegna greiðslna og útistandandi krafna.
  • Annast umsýslu fyrirtækjakorta og eftirfylgni með kostnaðarskýrslum.
  • Viðhalda gögnum og skjölum sem tengjast greiðslum, banka- og innheimtumálum.
  • Taka þátt í þróun og umbótum á verkferlum og innra eftirliti.
  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af störfum á sviði greiðslumála, innheimtu, sjóðstýringar eða fjármála er nauðsynleg.
  • Góð þekking á Microsoft 365, sérstaklega Excel.
  • Reynsla af Microsoft Business Central eða sambærilegu fjárhagskerfi er kostur.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
  • Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð.
  • Frumkvæði og umbótasinnuð hugsun.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Heilindi, rík ábyrgðarkennd og hæfni til að meðhöndla trúnaðarupplýsingar af fyllsta öryggi.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu starfsumhverfi
  • Tækifæri til þróunar og vaxtar í starfi
  • Góðan starfsanda og metnaðarfullt teymi

Um Borealis Data Center

Borealis Data Center var stofnað árið 2014 og rekur í dag fjögur gagnaver á Íslandi og í Finnlandi. Frá upphafi hefur markmið Borealis verið að veita framúrskarandi, örugga og sjálfbæra þjónustu til viðskiptavina okkar. Við vinnum með viðskiptavinum víða að úr heiminum að því að bjóða sveigjanlegar gagnaverslausnir sem styðja við rekstur framtíðarinnar.

Hjá Borealis Data Center leggjum við ríka áherslu á fjölbreytileika og inngildingu á vinnustaðnum og því hvetjum við alla, óháð kyni eða bakgrunni, til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2026.

Frekari upplýsingar veitir Birna Dís Bergsdóttir, HR Coordinator, [email protected]

Farið verður yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.

Auglýsing birt8. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar