

Gestgjafi í Hörpu
Ert þú góður gestgjafi og vilt starfa á skemmtilegum vinnustað?
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús leitar að góðum liðsmanni í afburða teymi sem starfar í gestastofu og miðasölu á jarðhæð Hörpu.
F Y R I R H V E R J A
Starfið er oft erilsamt, getur verið krefjandi um leið og það er skemmtilegt. Það hentar einstaklingi sem elskar að vera í hringiðu fjölbreytts mannlífs og hefur gaman af samskiptum við fólk. Starfið krefst mjög mikillar þjónustulundar, sveigjanleika og lausnamiðaðrar nálgunar í ólíkum aðstæðum sem upp kunna að koma. Starfið felst í að veita gestum sem heimsækja Hörpu framúrskarandi þjónustu hvort sem þeir eru að kaupa miða á viðburði, koma á tónleika, ráðstefnur, fundi eða til þess að skoða og fræðast um eitt fallegasta kennileiti borgarinnar.
S T A R F S U M H V E R F I Ð
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús býður upp á lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi í fjölbreyttu húsi sem er opið 364 daga ársins. Innan Hörpu er öflugt starfsmannafélag og samhentur hópur starfsfólks og stjórnenda sem stuðlar að því alla daga að viðhalda einstakri stöðu Hörpu á heimsmælikvarða.
Starfshlutfall er samningsatriði og getur verið á bilinu 70-100%.
Umsóknir sem innihalda ferilskrá og kynningarbréf skulu sendar í gegnum ráðningakerfi Alfreðs en nánari upplýsingar um starfið veitir Ásdís B. Kristjánsdóttir á netfangið [email protected]
- Upplýsingamiðlun og þjónusta við gesti Hörpu, bæði heimamenn sem og erlenda ferðamenn.
- Miðasala og svörun fyrirspurna og erinda á öllum miðlum Hörpu (sími, tölvupóstur og samfélagsmiðlar).
- Samskipti og samstarf við starfsfólk annarra deilda innan fyrirtækisins er varða þjónustu gestastofu og miðasölu.
- Samskipti og þjónusta við viðburðahaldara skv. beiðni yfirmanns
- Kynna sér mjög vel og vera meðvituð um dagskrá hússins til að geta með sem besta móti miðlað upplýsingum til gesta.
- Viðkomandi er staðgengill miðasölustjóra
- Góð almenn menntun sem nýtist í starfi.
- Góðir skipulagshæfileikar og sveigjanleiki í starfi.
- Afar rík þjónustulund, jákvæðni og mikil færni í mannlegum samskiptum.
- Mjög góð tungumálakunnátta, íslenska, enska og þriðja tungumál kostur.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Hæfni og geta til að vinna undir álagi með bros á vör.
- Áhugi og þekking á menningu og listum er kostur.
Íslenska
Enska










