
Skuggi hótelrekstur ehf.
Skuggi Hótel er staðsett í miðbæ Reykjavíkur við Hverfisgötu. Á hótelinu eru 100 herbergi og fallegur bar.
Keahótel reka níu hótel þau eru Hótel Borg, Sand Hótel, Apótek Hótel, Skuggi Hótel, Storm Hótel og Reykjavík Lights í Reykjavík, Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði og Hótel Kötlu Vík í Mýrdal.
Keahótel er spennandi vinnustaður þar sem starfar samheldinn hópur með fjölbreyttan bakgrunn. Við leggjum áherslu gott viðmót, þjónustulund, metnað, hæfni, og frumkvæði með það að leiðarljósi að skapa eftirsóknarvert og skilvirkt vinnuumhverfi og ánægða viðskiptavini.

Gestamóttökustjóri á Skugga Hótel
Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf gestamóttökustjóra á Skugga Hótel. Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum verkefnum í gestamóttöku ásamt daglegum rekstri í samvinnu við hótelstjóra.
Keahótel is looking for a strong and progressive leader for the position of Front Office Manager at Skuggi Hotel. The job includes supervision of daily tasks in the hotels reception as well as daily operations in cooperation with the hotel manager.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með gestamóttöku og starfsfólki í samvinnu við hótelstjóra
- Þjónustu- og gæðaeftirlit
- Yfirumsjón með bókunum, samskipti við ferðaskrifstofur og gesti
- Yfirumsjón á bar
- Skipulagning á komu gesta
- Mönnun vakta og þjálfun starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af hótelstörfum nauðsynleg
- Reynsla á barrekstri er kostur
- Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra starfsmenn til árangurs, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
- Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt22. ágúst 2025
Umsóknarfrestur1. september 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Hverfisgata 103, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaBarþjónustaFljót/ur að læraHreint sakavottorðSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)