Center Hotels
Center Hotels
Center Hotels

Gestamóttaka - Sumarstörf

Gestamóttakan er „hjarta“ hótelsins. Móttökustarfsmaður er sá starfsmaður sem gestirnir eiga mest samskipti við því er mikilvægt að sinna þeirra þörfum ávallt með heiðarleika, jákvæðni og þjónustulund í huga.

Markmiðið er að taka vel á móti gestunum, láta þeim líða vel á meðan dvöl stendur og kveðja þá með bros á vör.

Center Hotels leitar að starfsfólki sumarstörf í gestamóttöku. Við leitum að starfsfólki í dagvinnu þar sem er unnið á 2-2-3 vöktum frá kl 8:00-20:00 sem og í næturvinnu þar sem unnið er í 7 nætur / frí í 7 nætur. Vinnutími næturvaktar er frá 20:00-8:00.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka á móti og veita gestum hótelsins framúrskarandi þjónustu
  • Notkun á hótel og bókunarkerfi, auk þess að aðstoða söludeild við bókanir ef við á
  • Símsvörun og aðstoð við símsvörun á öllum hótelunum
  • Svörun tölvupósta
  • Skráning og sala ferða og sölu á allri þjónustu hótelsins
  • Uppgjör
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum og/eða störfum í hótel og ferðaþjónustu er æskileg
  • Góð enskukunnátta er skilyrði
  • Önnur tungumálakunnátta er kostur
  • Hæfni til að geta unnið sjálfstætt og í teymi
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð
  • Lausnamiðuð hugsun og metnaður til að skila af sér góðu starfi
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund
  • Góð tölvukunnátta
Auglýsing birt12. mars 2026
Umsóknarfrestur26. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Þverholt 14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar