
Fagkaup ehf
Fagkaup veitir byggingar-, iðnaðar- og veitumarkaði virðisaukandi þjónustu.
Innan Fagkaupa eru verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindri, Vatn og veitur, S. Guðjónsson, Varma og Vélarverk, K.H. vinnuföt, Áltak, Fossberg og Hagblikk. Fagkaup á einnig 70% hlut í DS Lausnum.
Rúmlega þrjúhundruð starfsmenn starfa hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.
Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa.
Í Mannauðsstefnu Fagkaupa er lögð áhersla á tækifæri til starfsþróunnar og vaxtar í starfi með öflugu fræðslustarfi og fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins.
Unnið er að jákvæðu, hvetjandi og öruggu starfsumhverfi þar sem heilsutengdar forvarnir skapa góðan vinnustað með vellíðan starfsfólks að leiðarsljósi.

Gæðastjóri Fagkaupa
Fagkaup leitar að öflugum Gæðastjóra.
Hlutverk gæðastjóra er að leiða gæða-, öryggis- og sjálfbærnimál félagsins til að ná þeim árangri sem stefnt er að, setja stefnutengd markmið, aðgerðaráætlanir og stýra umbótum
Starfið felur í sér náið samstarfs við starfsfólk fyrirtækisins og er mikilvægt að viðkomandi búi yfir hæfni til að leiða saman hópa og hugmyndir sem stuðla að framþróun verkefna
Hér er um að ræða frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling sem er tilbúinn að taka áskorunum og halda áfram uppbyggingu innviða og stefnumörkun Fagkaupa
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á gæðastjórnunarkerfi Fagkaupa í samræmi við lög, reglugerðir og staðla
- Leiða teymi sérfræðinga í málaflokkunum
- Vegferð málaflokka, framkvæmd stefnu í hverjum málaflokki, aðgerðaáætlun og eftirfylgni verkefna
- Ábyrgð á gæðaskjölum og hlutverk gagnvart gæðakerfinu
- Umbætur í ferlum, kerfum og gögnum tengt málaflokkunum. Rýni, innleiðing og uppfærsla gæðaskjala.
- Stefnumótun, markmiðasetning, mælingar, aðgerðir og stöðugar umbætur
- Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda í málaflokkunum
- Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks varðandi gæða,- öryggis- og sjálfbærnimál
- Eftirfylgni með lögum, reglugerðum og stöðlum sem leiða til breytinga á gæðakerfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af ISO-9001 staðli, öryggis- og sjálfbærnimálum
- Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Metnaður til að ná árangri
- Gagnalæsi og góð tölvukunnátta
- Rík greiningarhæfni og hæfni til að setja fram upplýsingar á skilmerkilegan hátt
- Drifkraftur, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Jafnlaunavottun
Að auki bjóðum við:
- Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
- Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
- Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu
- Afsláttarkjör af vörum félagsins
- Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi
- Áhugavert og fjölbreytt starf í sterku fyrirtæki í örum vexti
- Gott tækifæri til að hafa áhrif á skipulag og stefnu í málaflokknum
- Faglegt og samheldið starfsumhverfi
Auglýsing birt14. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSkipulagStefnumótunVerkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Öryggisstjóri (HSE Manager)
atNorth

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum (SCADA) – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Öryggisstjóri Vegagerðarinnar
Vegagerðin

Sérfræðingur í innkaupum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Innkaupastjóri/Purchasing Manager
Nicopods ehf