
SÁÁ
SÁÁ eru frjáls og óháð almannaheillasamtök sem starfrækja sérhæfða heilbrigðis- og lýðheilsuþjónustu vegna fíknsjúkdóms og veita jafnframt víðtækan stuðning við aðstandendur.
Samtökin gegna lykilhlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi og bjóða upp á samfellu í þjónustu sem nær yfir fráhvarfs- og lyfjameðferð, inniliggjandi meðferð, dag- og göngudeildarþjónustu, eftirfylgni og stuðning. Þjónustan er veitt í samræmi við faglegar leiðbeiningar, bestu þekkingu hverju sinni og gagnreyndar aðferðir.
SÁÁ eru bæði þjónustuaðili og málsvari.
Samtökin sinna sérhæfðri meðferð í umboði samfélagsins og standa jafnframt vörð um réttindi, velferð og mannvirðingu fólks með fíknsjúkdóm og fjölskyldna þeirra. Í starfinu er lögð sérstök áhersla á að tryggja jafnt aðgengi að árangursríkri meðferð, veita heildræna og þverfaglega þjónustu og efla bataferli einstaklinga og nánustu aðstandenda þeirra með markvissum stuðningi og fræðslu.
Sjá nánar á www.saa.is
GÆÐA- OG MANNAUÐSSTJÓRI
Er þetta starfið sem þú ert að bíða eftir?
SÁÁ leitar að gæða- og mannauðsstjóra í teymið sitt til að taka þátt í spennandi uppbyggingu og þeirri framþróun starfseminnar sem framundan eru.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og þróa gæðakerfi SÁÁ
- Tryggja samningsfylgni við Sjúkratryggingar Íslands og samhæfa viðbrögð við ytra eftirliti
- Umsjón með frávikum, kvörtunum og umbótaverkefnum
- Samræma lögbundna upplýsingagjöf og styðja við gerð gæðaskýrslna og stjórnunarupplýsinga
- Móta og leiða mannauðsstefnu SÁÁ
- Umsjón með ráðningum, starfsþróun og sínmenntun
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur í mannauðsmálum
- Greiningar og eftirfylgni mannauðstengdra gæðavísa
- Virk þátttaka í upplýsingagjöf, stefnumótun og þróun starfseminnar
- Ýmis önnur og fjölbreytt verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði heilbrigðis-, gæðastjórnunar, mannauðsstjórnunar eða stjórnsýslu, framhaldsmenntun kostur
- Reynsla af gæða- og mannauðsmálum
- Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu, heilbrigðislöggjöf eða eftirlitsferlum kostur
- Góð greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Rík færni til samskipta og samstarfs
- Leiðtogahæfni og farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur5. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
GreiningarfærniLeiðtogahæfniMannauðsstjórnunMannleg samskiptiOpinber stjórnsýslaSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


