Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands

Fulltrúi í þjónustuveri Sjúkratrygginga

Sjúkratryggingar Íslands auglýsa starf fulltrúa í þjónustuveri í deild Innri rekstrar. Um er að ræða fjölbreytt starf sem felst í þjónustu og upplýsingagjöf til viðskiptavina í síma og í þjónustuveri ásamt margskonar þjónustu innan Sjúkratrygginga.

Sjúkratryggingar er lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi. Við tryggjum réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað starfsmanna. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma, fjarvinnu allt að 2 daga í viku auk þess sem starfsfólk nýtur hlunninda á borð við íþróttastyrk og samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Símsvörun og almenn upplýsingagjöf til einstaklinga og veitenda heilbrigðisþjónustu

  • Afgreiðsla og upplýsingagjöf til viðskiptavina í þjónustuveri

  • Móttaka og meðhöndlun gagna

  • Innskráning skjala, skönnun og frágangur gagna

  • Verkefni tengd þjónustu við viðskiptavini og starfsemi innan SÍ

  • Ábyrgð á daglegum verkefnum deildar samkvæmt verklagi

  • Önnur tilfallandi verkefni að beiðni deildarstjóra

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf

  • Reynsla af skrifstofustörfum tengd samskiptum og þjónustu við einstaklinga æskileg

  • Góð almenn tölvukunnátta (Microsoft 365)

  • Gott vald á íslenskri tungu

  • Góð enskukunnátta æskileg

  • Önnur tungumálakunnátta æskileg, t.d. pólska eða önnur slavnesk mál

  • Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og rík þjónustulund

  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi

  • Vönduð og áreiðanleg vinnubrögð

  • Frumkvæði, umbótaþenkjandi hugsun og geta til að starfa bæði sjálfstætt og í hóp

Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur6. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar