Kringlumýri frístundamiðstöð
Kringlumýri frístundamiðstöð

Frístundaráðgjafi/leiðbeinandi í félagsmiðstöðina Hofið

Hofið sértæk félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga með fötlun óskar eftir að ráða frístundaráðgjafa/leiðbeinendur í hlutastarf. Hofið er staðsett í Laugardalnum, miðsvæðis í Reykjavík.

Hofið sértæk félagsmiðstöð sem heyrir undir frístundamiðstöðina Kringlumýri óskar eftir að ráða frístundaráðgjafa/ frístundaleiðbeinendur með umsjón í hlutastarf fyrir veturinn 2024-2025.

Hofið þjónustar börn og unglinga með fötlun sem búa eða sækja skóla vestan Elliðaáa í Reykjavík. Hofið er staðsett að Leirulæk 2, 105 R og er opið alla daga eftir að skóla lýkur og til klukkan 17. Markmið Hofsins er að vinna gegn félagslegri einangrun barna og unglinga. Starfið er einstaklingsmiðað og börnin og unglingarnir taka þátt í að móta dagskrána.

Við leitum að starfsfólki til að sjá um tengingu barna og unglinga sem taka þátt í starfi Hofsins inn í opið félagsmiðstöðvarstarf. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Í boði eru hlutastörf, 20-50%, með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og unglinga í sértæku starfi.
  • Tengja börn og unglinga úr Hofinu í opið félagsmiðstöðvarstarf.
  • Framfylgja stefnu skóla- og frístundasviðs í málefnum frítímans.
  • Samráð og samvinna við börn, unglinga og annað starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Auglýsing birt29. júlí 2024
Umsóknarfrestur12. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar