Kringlumýri frístundamiðstöð
Kringlumýri frístundamiðstöð

Frístundaráðgjafi í félagsmiðstöð

Félagsmiðstöðvarnar bjóða boðið upp á uppbyggilegt félagsstarf fyrir 10 - 16 ára börn og unglinga í frítímanum. Áhersla er lögð á lýðræðisþátttöku barna og unglinga og að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings. Unnið er í opnu starfi, tímabundnum verkefnum, í klúbbum og í sértæku hópastarfi. Félagsmiðstöðvastarfið byggir á hugmyndafræði unglingalýðræðis sem á að tryggja áhrif þeirra á starfið.

Markmið Kringlumýrar er að veita börnum og unglingum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra. Þar á að vera vettvangur tómstunda, menntunar, menningar og uppeldis undir handleiðslu hæfra starfsmanna.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi.
Áhugi að vinna með börnum og unglingum.
Færni í samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í félagsmiðstöðvarstarfi.
Góð íslensku – og almenn tölvukunnátta.
Reynsla af félagsmiðstöðvarstarfi æskileg
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning og framkvæmd á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og unglinga.
Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og annarra samstarfsaðila
Samráð og samvinna við börn, unglinga og samstarfsfólk.
Framfylgja og móta stefnu skóla- og frístundasviðs í málefnum frítímans
Fríðindi í starfi
Sundkort í sundlaugar ÍTR
Auglýsing birt11. nóvember 2022
Umsóknarfrestur25. nóvember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Tunguvegur 25, 108 Reykjavík
Safamýri 28 , 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar