Varmárskóli
Varmárskóli
Varmárskóli

Frístundaleiðbeinandi í Varmárskóla

Vilt þú leika þér í vinnunni?

Nú vantar okkur hresst og skemmtilegt fólk í vinnu sem frístundaleiðbeinendur fyrir haustið í Varmárskóla. Í boði er skemmtilegt starf með nemendum okkar í 1. - 4. bekk. Við leitum eftir frístundarleiðbeinendum sem hafa áhuga á hvetjandi og skemmtilegu starfi með börnum þar sem leikurinn er í fyrirrúmi. Í starfi okkar leggjum við áherslu á að skapa öruggt og skemmtilegt umhverfi fyrir börn til njóta þess tómstundarstarfs sem við höfum upp á að bjóða. Vinnutími er frá 13:00 - 16:30 og möguleiki er að vera ákveðna daga, því er starfið tilvalið með skóla. Möguleiki á að hefja störf 10. ágúst.

Um er að ræða á bilinu 30-50% starf.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Eydís Haraldsdóttir í síma 857-2757.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að styðja við nemendur í leik, leiðbeina þeim í samskiptum og aðstoða þá við að leysa úr árgreiningi eða öðrum vanda.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun á sviði uppeldis eða tómstundafræða er æskileg.

Frumkvæði, sjálfstæði, faglegur metnaður og góð íslensku kunnátta eru kostir.

Góð færni í mannlegum samskiptum er skilyrði.

Auglýsing birt18. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar