

Frístundaheimili Árborgar óska eftir frístundaleiðbeinendum og stuðningsstarfsmönnum
Ef þú hefur áhuga á að vinna með börnum er þetta skemmtilegasta starf sem hægt er að hugsa sér. Starfið felur í sér mikla fjölbreytni, sköpun, klúbba/smiðjustörf, útiveru og mikla gleði.
Hjá frístundaheimilum Árborgar eru starfrækt fjögur frístundaheimili fyrir börn á aldrinum 6-10 ára.
Frístundaheimilin eru hluti af frístundaþjónustu Árborgar og starfa eftir einkunnarorðunum Fjölbreytileiki - Traust - Samvinna – Gleði.
Um er að ræða starf í sumarstarfi frístundaheimila Árborgar í 100% starfshlutfall á tímabilinu 15. júní - 10. júlí og 10. ágúst – 21. ágúst. Í kjölfar þess tekur við vetrarstarf frístundaheimila sem hefst 24. ágúst í 40-50% starfshlutfalli.
Vinnutími á frístundaheimilunum er klukkan 12:45-16:15 í vetrafrístund og klukkan 08:00-16:15 í sumarfrístund.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Aðstoð við skipulagningu á faglegu frístundastarfi
- Leiðbeina börnum í leik og starfi
- Styðja við börn með sérþarfir
- Samskipti og samvinna við börn, starfsfólk og foreldra
· Áhugi og ánægja af starfi með börnum
· Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
· Færni í mannlegum samskiptum og samstarfi
· Frumkvæði og sköpunargleði
· Góð íslenskukunnátta æskileg
· Menntun sem nýtist í starfi æskileg
Íslenska










