Lindaskóli
Lindaskóli
Lindaskóli

Frístundaleiðbeinandi í Lindaskóla

Lindaskóli óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda

Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum eru 460 nemendur í 1. -10. bekk og rúmlega 70 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Mikil og góð samvinna hefur verið milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Gildi skólans eru vinátta, virðing, viska.

Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Framhaldsskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi
  • Frumkvæði og sköpunargleði

Starfshlutfall er 50% og unnið er eftir hádegi.

Frekari upplýsingar:

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að gefa heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.

Upplýsingar um starfið gefur Kristín Lillý Kjærnested forstöðumaður frístundar Lindaskóla.

Auglýsing birt9. september 2021
Umsóknarfrestur20. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar