Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Frístundaleiðbeinandi í Félagsmiðstöðina Zelsíuz

Félagsmiðstöðin Zelsíuz leitar að sjálfstæðum og skapandi einstaklingi með margvísleg áhugamál og metnað til að vinna í félagsmiðstöð fyrir öll ungmenni sveitarfélagsins Árborgar á aldrinum 10-16 ára. Markmið starfsins er að efla virkni, vellíðan og þátttöku ungmenna með skipulögðu starfi.

Um er að ræða hlutastarf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun september.

Félagsmiðstöðin er staðsett í Pakkhúsinu, Austurvegi 2B á Selfossi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfmaður tekur þátt í að skipuleggja og framkvæma starfssemi félagsmiðstöðvarinnar.
  • Starfsmaður leitast eftir að skapa jákvætt, öruggt, hlutlaust, fordómalaust umhverfi fyrir unglingana og er fyrirmynd fyrir unglinganna í húsinu. 
  • Umsjón með og framkvæmd hópastarfs í félagsmiðstöðinni .
  • Dagleg skýrslugerð í samráði við samstarfsfólk.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla æskileg
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð samskiptahæfni
  • Lágmarksaldur 20 ár 
Auglýsing birt16. júlí 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar