
Sjúkraþjálfari
Við ætlum að fjölga í teyminu og óskum því eftir að ráða árangursdrifinn og metnaðarfullan sjúkraþjálfara til okkar í 50% starf á Heilsuvernd Hjúkrunarheimili, staðsett á Akureyri.
Megináhersla í starfinu er endurhæfing og þjálfun íbúa Heilsuverndar Hjúkrunarheimila auk þjálfunar fyrir aldraða sem sækja dagþjálfunarþjónustu.
Við bjóðum upp á nútímalega þjálfunaraðstöðu og umhverfi sem er aðlaðandi bæði til endurhæfingar og hreyfingar. Við leggjum áherslu á fallvarnir, almennan styrk og samhæfingu og aukum með því lífsgæði og styðjum við sjálfstæðan lífsstíl einstaklinga.
Við hlökkum til að taka á móti áhugasömum sjúkraþjálfara í okkar metnaðarfulla teymi, sem er tilbúinn að takast á við áskoranir sjúkraþjálfunar í kraftmiklu og þverfaglegu starfsumhverfi.






