

Framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands
Blaðamannafélag Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf framkvæmdastjóra.
Um er að ræða fjölbreytt, skemmtilegt og krefjandi starf sem hentar kraftmiklum einstaklingi sem hefur innsýn í störf fjölmiðla.
Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar nk.
-
Yfirumsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu
-
Umsjón með og ábyrgð á öflugu faglegu starfi á vettvangi BÍ
-
Ábyrgð á áætlanagerð og kostnaðareftirliti
-
Seta á stjórnarfundum og að tryggja samfellu í verkefnum félagsins
-
Gerð kjarasamninga fyrir hönd félagsins í samvinnu við samningaráð BÍ
-
Stefnumótun í samráði við stjórn BÍ
-
Ráðgjöf og aðstoð við formann, nefndir og stjórnir sjóða félagsins
-
Koma fram fyrir hönd félagsins eftir því sem við á og gæta hagsmuna þess
-
Menntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af blaðamennsku og þekking á störfum fjölmiðla
-
Góð tæknifærni
-
Góðir skipulagshæfileikar og samskiptahæfni
-
Reynsla af verkefna- og/eða viðburðastjórnun er kostur
-
Reynsla af fjármálum og rekstri er kostur
-
Reynsla af almannatengslum er kostur
-
Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
