Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands

FORSTÖÐUMAÐUR REKSTRAR OG INNKAUPA

Ertu sterk/ur í rekstri?
Hefur þú áhuga á innkaupum, fjölbreyttum verkefnum og að vel sé farið með opinbert fé?
Heilbrigðisstofnun Norðurlands leitar af kraftmiklum, útsjónarsömum og öflugum leiðtoga til að sinna starfi forstöðumanns rekstrar og innkaupa. Í starfinu felst rekstur ýmissa deilda þvert á stofnunina og samskipti við fjölda aðila. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfsstöðvum HSN. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri fjármála og stoðsviða.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í rekstraráætlanagerð og eftirfylgni
  • Greiningar og skýrslugerð
  • Upplýsingagjöf til framkvæmdastjórnar og opinbera aðila
  • Samræming innkaupa og stjórnun þeirra
  • Umsjón með ýmissi stoðþjónustu
  • Yfirumsjón eigna, tækja og bifreiða
  • Ýmis önnur verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, framhaldsmenntun kostur
  • Haldbær reynsla sem nýtist í starfi s.s. af rekstri, stjórnun og greiningu
  • Mjög góð greiningahæfni og þekking á helstu greiningartólum
  • Mjög góð tölvukunnátta nauðsynleg
  • Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í starfi
  • Góð samskiptahæfni og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslensku og enskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun kostur
  • Ökuleyfi, hreint sakavottorð og gott orðspor
 
Auglýsing birt7. júní 2024
Umsóknarfrestur19. júní 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar