
Landsbankinn
Hjá Landsbankanum starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíka þekkingu, reynslu og bakgrunn. Reynslan sem býr í starfsfólkinu styrkir stoðir rekstrarins á meðan fjárfesting í öflugri endurmenntun, starfsþróun og ráðning nýrra starfskrafta tryggir stöðuga framþróun.
Við erum hreyfiafl í samfélaginu og vinnum ötullega að því að rödd bankans sé sterk, traustvekjandi, að hún fylli starfsfólk stolti og efli árangursdrifna menningu.

Forstöðumaður lögfræðiþjónustu
Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi til að leiða lögfræðiþjónustu Landsbankans. Viðkomandi þarf að hafa metnað til að styðja við þróun nútímalegrar bankaþjónustu með það að markmiði að einfalda líf viðskiptavina og stuðla að skilvirkni í starfseminni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mikilvægt er að nýr forstöðumaður búi yfir leiðtogahæfni, sýni yfirvegun þegar á reynir og geti forgangsraðað verkefnum með skýrum hætti. Jafnframt er lögð áhersla á hæfni til að byggja upp öfluga liðsheild, jákvæðan starfsanda og eiga góð samskipti innan sem utan bankans.
Lögfræðiþjónusta er eining sem starfar beint undir bankastjóra og sinnir fjölbreyttri lögfræðiþjónustu og ráðgjöf þvert á bankann og bankaráð.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær reynsla af lögfræðistörfum og gott orðspor
- Góð þekking á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja
- Þekking og reynsla af störfum á fjármálamarkaði
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að leiða teymi og laða fram það besta í fólki
- Embættispróf í lögfræði (cand.jur.), ML í lögfræði
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur26. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Hæfni
Embættispróf í lögfræðiLeiðtogahæfniMannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)



