

Lögfræðingur hjá Saga legal
Saga legal leitar að metnaðarfullum lögfræðingi til starfa með öflugu teymi lögmannsstofunnar. Starfið felst aðallega í víðtækri ráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga sem hafa orðið fyrir líkamstjóni vegna umferðarslysa. Kjósi viðkomandi að fara einnig í önnur verkefni sem stofan er með er sá möguleiki að sjálfsögðu líka fyrir hendi. Við leggjum ríka áherslu á vandaða þjónustu, mannlega nálgun og fagleg vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hagsmunagæsla og ráðgjöf við tjónþola vegna líkamstjóns
- Samskipti við tryggingafélög, sjúkrastofnanir og matsmenn
- Umsjón með tjónsuppgjörum og útreikningum á bótakröfum samkvæmt skaðabótalögum
- Gagnaöflun og ritun matsbeiðna og greinargerða sem málunum fylgja
- Rekstur mála fyrir úrskurðarnefndum og dómstólum (ef viðkomandi er með málflutningsréttindi)
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Fullnaðarpróf í lögfræði er nauðsynlegt
- Rík þjónustulund og hæfni til að eiga viðkvæm samskipti við fólk í erfiðum aðstæðum er nauðsynleg
- Góð kunnátta í skaðabótarétti er nauðsynleg
- Framúrskarandi kunnátta í íslensku og hæfni til að setja fram flókinn texta á skýran hátt er nauðsynleg
- Reynsla á sviði skaðabóta- eða vátryggingaréttar er kostur
- Málflutningsréttindi eru kostur
Hvað við bjóðum:
- Tækifæri til að vaxa í starfi fyrir réttan starfsmann
- Sérhæfingu á sviði skaðabótaréttar en einnig tækifæri til þess að fara inn á önnur réttarsvið ef viðkomandi starfsmaður kýs það
- Gott og styðjandi starfsumhverfi þar sem liðsheild er í fyrirrúmi
Fylgigögn með umsókn:
Við óskum eftir því að eftirfarandi gögn fylgi umsókninni:
- Ferilskrá með upplýsingum um menntun og starfsreynslu
- Upplýsingar um launakröfur og vinnutíma
- Hnitmiðað kynningarbréf þar sem rökstutt er af hverju viðkomandi telur sig eiga erindi í starfið.
- Staðfest afrit af einkunnum úr laganámi
- Meðmæli eða upplýsingar um umsagnaraðila eru vel þegin en ekki verður haft samband við meðmælendur eða umsagnaraðila nema með samþykki umsækjanda
Starfshlutfall o.fl.:
- Um er að ræða 100% starfshlutfall (fullt starf)
- Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Umsóknir og fyrirspurnir:
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2026. Öllum umsóknum verður svarað að umsóknarfresti loknum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir og farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Saga Ýrr Jónsdóttir hrl. í gegnum netfangið [email protected]
Íslenska
Enska


