
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Forstöðumaður frístundamála
Við erum að leita að öflugum leiðtoga til að leiða frístundastarfið í Fjarðabyggð í stjórnendateymi málaflokks íþrótta- og tómstunda. Ef þú ert með metnað til að leiða gott starf, með reynslu af stjórnun og að vinna með börnum, þá erum við að leita að þér!
Fjarðabyggð er öflugt, vaxandi samfélag sem leggur áherslu á velferð og málefni fjölskyldna og barna. Á fjölskyldusviði er lögð áhersla á þverfaglega vinnu og stuðning starfsmanna í teymisstarfi við úrlausn margþættra verkefna sem tengjast fjölskyldum og börnum með það markmið að efla lífsgæði og hagsæld þeirra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með skipulagi, rekstri og samræmingu starfsemi sem honum er falin.
- Skipuleggur og heldur utan um forvarnarteymi og forvarnarmál.
- Annast samstarf við hagsmunaaðila.
- Umsjón með upplýsingagjöf um starfsemi málaflokksins og miðlun upplýsinga.
- Öflun og greining upplýsinga um forvarnarmál sveitarfélagsins
- Þátttaka í stefnumörkun í forvarnarmálum.
- Frumkvæði að samskiptum og aðgerðum til að styrkja forvarnarmál og þjónustu í frístundum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði uppeldis- og/eða menntamála er áskilin.
- Framhaldsmenntun á háskólastigi eða viðamikil stjórnunarreynsla er æskileg.
- Reynsla og þekking á rekstri og stjórnun er æskileg.
- Þekking á helstu upplýsingakerfum.
- Góð málakunnátta (íslenska og enska) og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
- Forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Geta til að taka þátt í og stjórna breytingum.
- Áhugi á þátttöku í teymisstarfi og umbótaverkefnum.
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur1. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Kennari óskast á miðstig í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari óskast
Sveitarfélagið Strandabyggð

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ, Vífilsstöðum - Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Hjallastefnan

Vegna forfalla óskast kennarar til starfa við Djúpavogsskóla
Djúpavogsskóli

Mýrarhúsaskóli auglýsir þrjár stöður.
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari - leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær