Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Forstöðumaður Frístundaheimilisins Hóla við Sunnulækjarskóla

Sveitarfélagið Árborgar leitar að forstöðumanni fyrir frístundaheimilið Hóla við Sunnulækjarskóla á Selfossi. Um er að ræða fullt starf, ótímabundið. Leitað er að reglusömum og áreiðanlegum einstaklingi sem hefur m.a. til að bera frumkvæði, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Frístundaheimilið er með aðstöðu innan húsnæðis Sunnulækjarskóla. Á frístundaheimilinu er boðið uppá metnaðarfullt og fjölbreytt frístundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Sveitarfélaginu Árborg í frístundamálum síðustu misseri og mikla grósku má finna innan frístundaþjónustu Árborgar.

Um er að ræða spennandi og áhugavert starf þar sem er boðið upp á sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa tæplega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsjón, rekstur og áætlanagerð fyrir frístundaheimilið, þ.m.t. ábyrgð á starfsmannamálum, innkaupum og skipulagning þjónustu staðarins í samráði við notendur, frístunda- og forvarnarfulltrúa og starfsfólk
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk, skóla og aðra samstarfsaðila
  • Þátttaka í teymum og þverfaglegu samstarfi innan frístundaþjónustu Árborgar sem og fjölskyldusviði sveitarfélagsins
  • Þátttaka í stefnumótun og framtíðarsýn frístundastarfs í sveitarfélaginu 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í tómstunda- og félagsmálafræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun frístundastofnana æskileg
  • Áhugi á frístundastarfi skilyrði 
  • Starfsreynsla af starfi frístundaheimila æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Skipuleg og fagleg vinnubrögð
  • Almenn tölvukunnátta 
Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur13. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar