![Frístundamiðstöðin Bungubrekka](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-e12d822a-9fc9-4638-ad30-29672400b9c7.png?w=256&q=75&auto=format)
Frístundamiðstöðin Bungubrekka
Frístundamiðstöðin Bungubrekka hefur yfirumsjón á skipulagningu og rekstri á því frístundastarfi sem sveitarfélagið ber ábyrgð á og býður upp á. Þar má nefna frístundaheimilið sem er þjónusta fyrir börn í 1.-4. bekk, félagsmiðstöðina sem er þjónusta fyrir börn og unglinga í 5.-10. bekk ásamt skipulögðu frístundastarfi yfir sumartíman fyrir fjölbreytta aldurshópa.
![Frístundamiðstöðin Bungubrekka](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-98f6ef11-0489-4e1a-95da-5b2bda95b3ba.png?w=1200&q=75&auto=format)
Forstöðumaður
Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað og áhuga til að leiða áfram farsælt frístundastarf í frístundamiðstöðinni Bungubrekku. Frístundastarfið í Bungubrekku fékk tilnefningu til íslensku menntaverðlauna 2023. Hveragerðisbær er stoltur af starfsemi Bungubrekku og leitar eftir öflugum leiðtoga til starfa sem hefur skýra framtíðarsýn og er tilbúinn að bætast í og leiða frábæran starfsmannahóp.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri og skipulagi
- Mannauðsmál og leiðtogahlutverk frístundamiðstöðvar
- Stýrir faglegu starfi, stefnumótun og þróun innra starfs í samræmi við stefnu bæjarins
- Sér til þess að til staðar séu áætlanir um framkvæmd þjónustunnar, að þær séu endurskoðaðar reglulega og þeim framfylgt við framkvæmd þjónustunnar í samræmi og þá verkferla, reglur og lög er varða frístundamál sveitafélaga
- Frumkvæði í samskiptum og aðgerðum til að styðja við og styrkja forvarnamál og þjónustu í frístundum
- Seta í nefndum og ráðum er varða starfið
- Samstarf og samvinna við lykilstofnanir innan sem utan sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.a.m tómstundafræðum er kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
- Haldbær reynsla af mannaforráðum, rekstri og áætlanagerð æskileg
- Reynsla af breytingastjórnun, umbótastarfi og skipulagi teymisvinnu
- Þekking á og geta til að starfa í anda þeirra meginhugmynda um gildi frístundaþjónustu
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, góðir skipulagshæfileikar og lausnamiðuð nálgun
- Leiðtogafærni og eiginleiki til að taka þátt í og stýra breytingum og þróunarstarfi
- Framúrskarandi íslenskukunnátta og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta og geta til að tileinka sér nýja hluti er viðkoma tæknilausnum í starfi
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, frumkvæði og metnaður til að halda góðu starfi áfram í blóma
Auglýsing stofnuð27. júní 2024
Umsóknarfrestur15. júlí 2024
Tungumálahæfni
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
Staðsetning
Breiðamörk 27, 810 Hveragerði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar