
Íþróttamiðstöðin á Djúpavogi
Íþróttamiðstöð Djúpavogs er vel búin tækjum og búnaði til hreyfingar og heilsueflingar. Vel búinn íþróttasalur, sundlaug með heitum pottum og líkamsræktarsalur er meðal þess sem er í boði.

Forstöðuaðili íþróttamiðstöðvar
Laus er til umsóknar staða forstöðuaðila íþróttamiðstöðvar á Djúpavogi frá 1. ágúst 2022.
Viðkomandi ber ábyrgð á öllum rekstri íþróttamiðstöðvar á Djúpavogi og hefur daglega umsjón með viðhaldi mannvirkja, tækja og búnaðar auk ábyrgðar á starfsmannahaldi, samskiptum við skóla, íþróttafélög og aðrar stofnanir, o.fl.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Næsti yfirmaður er íþrótta- og æskulýðsstjóri Múlaþings.
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg. Þekking og reynsla af viðhaldi kostur.
Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði.
Skipulagshæfni.
Lausnamiðun og geta til að bregðast við óvæntum aðstæðum.
Góð almenn tölvuþekking mikilvæg og reynsla af aðgangs- og bókhaldskerfum kostur.
Viðkomandi þarf að standast námskeið í björgun og skyndihjálp og sundpróf fyrir laugarverði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur fjárhags-, verk- og framkvæmdaáætlana.
Annast smærra viðhald og hefur umsjón með öllum viðhaldsverkefnum.
Dagleg stjórnun starfsfólks, þ.m.t. ráðningar og vaktaáætlanir.
Umsjón með allri útleigu og notkun mannvirkjanna.
Umsjón með fjárhag sinna stofnana.
Innkaup, utanumhald, skipulagning og ýmislegt sem til fellur í daglegum rekstri.
Auglýsing birt24. júní 2022
Umsóknarfrestur7. júlí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Varða 4, 765 Djúpivogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMetnaðurOpinber stjórnsýslaRáðningarSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSkyndihjálpSundSveigjanleikiVinna undir álagiÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Útstillingahönnuður H&M
H&M

Branch Operations Manager
Indie Campers

Engineering Manager
Fenris Creations

Vinnslustjóri
Samherji hf.

Deildarstjóri stafrænnar verðmætasköpunar
Orka náttúrunnar

Skrifstofustjóri - Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í okkar lið!
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf.

Verkstjóri
Garðlist ehf

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Kommunikasjonssjef (CCO)
Signatur AS