
Fjölskyldusvið
Múlaþing er nýtt sveitarfélag á Austurlandi með rúmlega 5000 íbúum. Undir Fjölskyldusvið Múlaþings heyra félagsmál, fræðslumál, íþrótta- og æskulýðsmál.

Forstöðuaðili félagsmiðstöðvar
Auglýst er eftir forstöðuaðila félagsmiðstöðvar á Seyðisfirði.
Forstöðuaðili sér um skipulagningu, utanumhald og framkvæmd félagsmiðstöðvastarfs á Seyðisfirði fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10-16 ára.
Viðkomandi vinnur í teymi með öðru starfsfólki á sviði íþrótta- og æskulýðsmála og tekur þátt í stefnumótun í félagsmiðstöðvamálum sveitarfélagsins Múlaþings.
Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.
Er um að ræða 100% starf og er ráðið í starfið frá ágúst 2023.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi. Háskólamenntun á sviði uppeldis-, tómstunda- og/eða félagsmálafræði eða sambærileg uppeldismenntun mikill kostur.
Reynsla af stjórnun.
Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er nauðsynleg og þekking á málaflokknum æskileg.
Góð íslensku og enskukunnátta í máli og ritun og góð almenn tölvukunnátta.
Þekking á umhverfi samfélagsmiðla og helstu forrita til efnissköpunar.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 20 ára gamall og hafa hreint sakavottorð skv. 10. gr. Æskulýðslaga (lög nr. 70/2007).
Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
Heiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera umburðalyndur.
Er góð fyrirmynd.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sinnir vöktum í félagsmiðstöðvum seinni partinn og á kvöldin, sértæku hópastarfi, námskeiðum, fræðslu, samvinnu við grunnskóla og öðru slíku.
Skipuleggur og mótar frítímastarf fyrir börn og unglinga þar sem höfð eru að leiðarljósi uppeldis- og forvarnamarkmið.
Vinnur starfsáætlun fyrir félagsmiðstöðina í samráði við annað starfsfólk á íþrótta- og æskulýðssviði.
Sækir fræðslu í samráði við annað starfsfólk sviðsins.
Sækir viðburði með börnum- og unglingum á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
Sér um samfélagsmiðla miðstöðvarinnar, t.a.m. Facebook og Instagram.
Ber ábyrgð á fjármálum félagsmiðstöðvarinnar og tekur þátt í fjárhagsáætlunargerð.
Auglýsing birt15. mars 2023
Umsóknarfrestur23. apríl 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Seyðisfjörður
Starfstegund
Hæfni
FacebookFrumkvæðiHeiðarleikiInstagramMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStefnumótunStundvísiTeymisvinnaÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Stuðningsfulltrúi í frístund á Hvanneyri
Borgarbyggð

Deildarstjóri óskast
Heilsuleikskólinn Skógarás

Leikskólakennari óskast í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

Stuðningsfulltrúi óskast
Helgafellsskóli

Næringarfræðingur á næringarstofu
Landspítali

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan

Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Hraunsel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólakennari í Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Stuðningsfulltrúi í frístund Borgarnesi
Borgarbyggð