Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið

Forstöðuaðili félagsmiðstöðvar

Auglýst er eftir forstöðuaðila félagsmiðstöðvar á Seyðisfirði.

Forstöðuaðili sér um skipulagningu og framkvæmd félagsmiðstöðvastarfs á Seyðisfirði fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10-16 ára.

Viðkomandi vinnur í teymi með öðru starfsfólki á sviði íþrótta- og æskulýðsmála og tekur þátt í stefnumótun í félagsmiðstöðvamálum sveitarfélagsins Múlaþings.

Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.

Er um að ræða 100% starf og er ráðið í starfið frá ágúst 2021.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi. Háskólamenntun á sviði uppeldis-, tómstunda- og/eða félagsmálafræði eða sambærileg uppeldismenntun mikill kostur.
Reynsla af stjórnun.
Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er nauðsynleg og þekking á málaflokknum æskileg.
Góð íslensku og enskukunnátta í máli og ritun og góð almenn tölvukunnátta.
Þekking á umhverfi samfélagsmiðla og helstu forrita til efnissköpunar.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 20 ára gamall og hafa hreint sakavottorð skv. 10. gr. Æskulýðslaga (lög nr. 70/2007).
Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
Heiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera umburðalyndur.
Er góð fyrirmynd.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sinnir vöktum í félagsmiðstöðvum, sértæku hópastarfi, námskeiðum, fræðslu, samvinnu við grunnskóla og öðru slíku.
Skipuleggur og mótar frítímastarf fyrir börn og unglinga þar sem höfð eru að leiðarljósi uppeldis- og forvarnamarkmið.
Vinnur starfsáætlun fyrir félagsmiðstöðina í samráði við annað starfsfólk á íþrótta- og æskulýðssviði.
Sækir fræðslu í samráði við annað starfsfólk sviðsins.
Sækir viðburði með börnum- og unglingum á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
Sér um samfélagsmiðla miðstöðvarinnar, t.a.m. Facebook, Instagram og Discord.
Ber ábyrgð á fjármálum félagsmiðstöðvarinnar og tekur þátt í fjárhagsáætlunargerð.
Auglýsing birt28. júní 2021
Umsóknarfrestur8. ágúst 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurvegur 4, 710 Seyðisfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar