
PLAY
PLAY er íslenskt lágfargjaldaflugfélag sem býður flug til vinsælla áfangastaða á sem hagkvæmastan hátt fyrir farþega og náttúru. Með nýlegum Airbus 320neo og 321neo flugvélum er dregið sem mest úr losun gróðurhúsalofttegunda og þannig leitast við að koma fólki á áfangastað með sem minnstu kolefnisfótspori.
Hjá PLAY er öryggið alltaf í fyrsta sæti og áhersla lögð á stundvísi, einfaldleika, gleði og hagstæð verð.
Hjá PLAY er verið að byggja upp fjölbreyttan starfshóp og einstakan starfsanda. Áhersla er lögð á að skapa starfsmönnum öruggt og jákvætt starfsumhverfi sem er laust við mismunun og hvers konar áreitni. Við viljum bæta í þennan hóp drífandi og kraftmiklu fólki sem vill taka þátt í að breyta íslenskri flugsögu.
Nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið [email protected].
Eingöngu er tekið á móti umsóknum á https://flyplay.com/storf.

Flugumsjón
Við leitum að úrræðagóðum og þjónustulunduðum einstaklingum með jákvætt viðmót til að starfa í flugumsjón. Góð almenn tölvukunnátta og framúrskarandi færni í ensku er skilyrði.
Meðal helstu verkefna eru eftirfylgni og framkvæmd breytinga á daglegum flugáætlunum til að tryggja stundvísi flugfélagsins. Starfsstöðin er í Keflavík. Um er að ræða vaktavinnu, þar sem unnið er eftir 5-5-4 vaktakerfi á 12 tíma vöktum, ýmist að degi eða nóttu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af flugrekstri
Álagsþol, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun
Framúrskarandi enskukunnátta í ræðu og riti
Góð almenn tölvukunnátta
Jákvætt viðmót
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð
Gerð flugáætlana
Eftirfylgni með vakta- og hvíldarreglum áhafnameðlima
Undirbúningur fyrir hleðslu flugvéla og gerð hleðsluskráa
Samskipti við áhafnir og þjónustuaðila
Samskipti við farþega ef röskun á flugi á sér stað
Almennt eftirlit með leiðakerfi
Auglýsing birt11. janúar 2022
Umsóknarfrestur23. janúar 2022
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiVinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
