Icelandair
Icelandair
Icelandair

Flugþjónar og flugfreyjur sumarið 2023

Dreymir þig um að starfa í háloftunum? Icelandair fjölgar í hópi flugþjóna og flugfreyja sumarið 2023.

Icelandair óskar eftir að ráða flugþjóna og flugfreyjur til starfa í millilandaflugi fyrir sumarið 2023. Um er að ræða tímabundin störf í 100% starfshlutfalli með möguleika á áframhaldandi starfi.

Við sækjumst eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að vinna í umhverfi þar sem öryggi og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Mikilvægt er að starfsfólk vinni vel í teymum, sé lausnamiðað, þjónustulundað, með mjög góða félagsfærni og hafi metnað til að ná árangri í starfi. Starfið reynir á andlegan styrk og getu til að taka upplýstar ákvarðanir í samræmi við stefnu og þjálfun Icelandair.

Kynntu þér starfið hér:https://www.icelandair.com/is/um-okkur/flugfreyja-flugthjonn/

Hvað þarf til:

  • Brennandi áhuga og reynslu af þjónustustörfum
  • Mjög góða íslensku- og enskukunnáttu, önnur tungumálakunnátta er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og góða færni í teymisvinnu
  • Jákvætt viðhorf og metnað til að ná árangri í starfi
  • Bólusetningu fyrir Covid 19 (vegna reglugerða einstakra landa)
  • Fæðingarár 2002 eða fyrr

Áður en til ráðningar kemur þurfa umsækjendur að standast læknisskoðun samkvæmt reglugerð flugmálayfirvalda og þjálfun á vegum Icelandair.

Kaup og kjör fara eftir kjarasamningi Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands.

Umsóknum þurfa að fylgja eftirfarandi gögn:

1. Ferilskrá

2. Mynd í viðhengi

  • Passamynd í lit með hvítum bakgrunni
  • Myndin þarf að vera í góðri upplausn
  • Mikilvægt er að umsækjandi sé ekki í einkennisfatnaði, með höfuðfat, heyrnatól eða annan búnað á höfðinu. Gleraugu eru leyfð, þó ekki sólgleraugu
  • Myndin má ekki vera eldri en 6 mánaða

3. Umsagnaraðilar

Umsóknarfrestur:

Umsóknir óskast sendar ásamt fylgigögnum eigi síðar en 1. nóvember 2022.

Byrjað verður að vinna úr innsendum umsóknum fljótlega og stefnt er að því að fyrstu námskeiðin hefjist í haust. Vinnsla umsókna mun þó standa yfir út árið og allar umsóknir fá skoðun. Fyrstu umsækjendurnir gætu átt von á því að fá boð um viðtal á næstu vikum.

Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.

Í ferlinu verður tekið mið af jafnréttisáætlun fyrirtækisins og markmiðum IATA um að stuðla að jöfnun á hlutfalli kynja í flugiðnaði. Við samsetningu hópsins verður lögð áhersla á fjölbreytni og breidd hvað varðar kyn og aldur. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Nánari upplýsingar má fá á netfanginu: [email protected]

Auglýsing birt2. september 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Flugvellir 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar