

Flokkstjóri - Smíðavöllur
Flokkstjóri hefur umsjón með og skipuleggur daglegt starf á Smíðavöllum í samvinnu við deildarstjóra. Hann annast þátttöku, leiðsögn og skipulagningu á Smíðavöllum fyrir börn á aldrinum 9 til 12 ára og er með aðstöðu við Smáraskóla. Smíðavöllur er opinn frá kl. 10:00 – 15:00 virka daga á meðan á námskeiðinu stendur.
Vinnutími er frá kl. 08:00 - 16:00.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsækjendur þurfa að vera á 20. aldursári.
Starfstímabil er frá 2. júní – 27. júlí 2021.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar veitir Amanda K. Ólafsdóttir deildarstjóri frístundadeildar, sími 441 0000.











