

Fjármálastjóri þjóðgarðsins á Þingvöllum
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum leitar að öflugum og reynslumiklum fjármálastjóra til að koma til starfa í lifandi og kviku starfsumhverfi. Fjármálastjóri starfar með öflugu teymi sem stýrir daglegum rekstri þjóðgarðsins en ber ábyrgð á bókhaldi, fjárhagslegri áætlana- og skýrslugerð og samskiptum við ytri aðila opinbera og einkaaðila vegna fjármála þjóðgarðsins.
-
Fjárhagsáætlana- og skýrslugerð, gerð greiðsluáætlana og eftirlit með kostnaði.
-
Yfirumsjón með fjárreiðum, innheimtu og uppgjörum.
-
Yfirumsjón með bókhaldi, afstemmingum og gerð ársreikninga.
-
Upplýsingagjöf og samskipti við fagráðuneyti og aðra opinbera aðila.
-
Menntun sem nýtist í starfi.
-
Þekking og reynsla af vinnu með fjárhags- og bókhaldskerfum ríkisins t.d. Oracle og Akra.
-
Þekking og reynsla af bókhalds- og sölukerfum t.d. LS.One og DK.
-
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
-
Farsæl stjórnunarreynsla af störfum á vegum hins opinbera er kostur.
-
Metnaður, frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í starfi.
-
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og til að starfa í teymi.
-
Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn yfir fjölmörg verkefni.
-
Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti.

