Rafholt ehf.
Rafholt ehf.
Rafholt ehf.

Fjármálastjóri

Rafholt leitar að reyndum og metnaðarfullum fjármálastjóra til að leiða fjármál og birgðastýringu félagsins. Viðkomandi ber heildarábyrgð á fjármálum, reikningshaldi og fjárstýringu, auk þess að taka virkan þátt í stefnumörkun félagsins.

Leitað er að einstaklingi sem vill takast á við krefjandi og ábyrgðarmikið starf í metnaðarfullu og ört vaxandi fyrirtæki, þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, ábyrga fjármála- og birgðastýringu og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila.

Rafholt er leiðandi fyrirtæki á sviði raflagna, fjarskipta, varaafls, rafstöðva og kælilausna. Hjá félaginu starfa um 170 manns og er það einn stærsti vinnuveitandi Íslands á raflagnamarkaði.

Fyrirtækið hefur skýra framtíðarsýn um áframhaldandi vöxt og þróun og bjóðum við upp á gott starfsumhverfi, góðan starfsanda og fjölbreytt tækifæri til starfsþróunar. Öflugt starfsmannafélag er starfandi og aðstaða starfsfólks til fyrirmyndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð og stýring á fjármálum, reikningshaldi, innkaupum og birgðum félagsins 

  • Umsjón með árshluta- og ársuppgjöri, gerð ársreikninga og fjárhagsáætlana 

  • Greining, samantekt og miðlun fjárhagsupplýsinga til stjórnar 

  • Fjármögnun og samskipti við fjármálastofnanir  

  • Aðkoma að starfrænni þróun og rekstri á fjárhagskerfum  

  • Gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana og spálíkana  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. í viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum 

  • Reynsla af reikningshaldi, uppgjörsvinnu, birgðabókhaldi og innkaupum  

  • Góð þekking á fjárhags- og upplýsingakerfum 

  • Hæfni til að greina og miðla fjárhagsupplýsingum á skýran hátt 

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og lausnamiðað hugarfar 

  • Geta til að leiða samskipti við innlenda jafnt sem erlenda hagsmunaaðila 

  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti 

Auglýsing birt13. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Smiðjuvegur 4B, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)