SOS Barnaþorpin
SOS Barnaþorpin
SOS Barnaþorpin

Fjármálastjóri

SOS Barnaþorpin á Íslandi óska eftir að ráða öflugan fjármálastjóra til að stýra fjármálum félagsins. Fjármálastjóri ber heildarábyrgð á fjármálum, reikningshaldi og fjárreiðum auk þess að hafa virka aðkomu að stefnumótun og stjórnun félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á fjármálastjórn, reikningshaldi og fjárreiðum félagsins
  • Umsjón með árshluta- og ársuppgjöri, gerð ársreikninga og fjárhagsáætlana
  • Greining, samantekt og miðlun fjárhagsupplýsinga til framkvæmdastjórnar, stjórnar og höfuðstöðva
  • Samskipti við endurskoðendur, fjármálastofnanir, systurfélög og höfuðstöðvar
  • Ábyrgð á lögboðnum skýrsluskilum, innra eftirliti og þátttaka í áhættustýringu
  • Yfirsýn yfir fjárfestingar og aðkoma að fjáröflun félagsins
  • Virk þátttaka í framkvæmdastjórn og samstarf við stjórn
  • Aðkoma að stafrænni þróun og rekstri upplýsingatæknikerfa

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf á sviði viðskipta, fjármála eða sambærilegra greina
  • Haldbær reynsla af reikningshaldi, uppgjörsvinnu og gerð ársreikninga
  • Mjög góð þekking og reynsla af Excel
  • Reynsla af greiningu og miðlun fjárhagsupplýsinga
  • Þekking og reynsla af fjárhags- og upplýsingakerfum er kostur
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Öguð og skipulögð vinnubrögð, drifkraftur og lausnamiðað hugarfar
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Um SOS Barnaþorpin

SOS Barnaþorpin eru alþjóðleg hjálparsamtök sem hafa séð mun­að­ar­laus­um og yf­ir­gefn­um börn­um um all­an heim fyr­ir fjöl­skyldu og heim­ili síð­an 1949. SOS Barna­þorp­in hafa beina um­sjá með um 70.000 börn­um og ung­menn­um all­an sól­ar­hring­inn. Auk þess sinna sam­tök­in forvarnarstarfi sem gengur út á að aðstoða barnafjölskyldur í sárafátækt til að standa á eigin fótum og nær það starf til yfir hálfrar milljónar barna, ungmenna og foreldra þeirra í yfir 100 löndum.

Hlut­verk sam­tak­anna á Ís­landi er fyrst og fremst að sinna fjár­öfl­un fyr­ir verk­efni syst­ur­sam­taka sinna í yfir 100 lönd­um og sinna upp­lýs­inga­gjöf til styrktarað­ila. SOS Barna­þorp­in á Ís­landi eru vinnu­stað­ur þar sem rík­ir heil­brigð menn­ing, gagn­kvæm virð­ing og góð­ur andi. Samtökin hafa verið Fyrirmyndarfyrirtæki VR undanfarin fjögur ár. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu þar sem viðkomandi fær tækifæri til að þróa og móta starfið. Auk þess er boðið upp á sveigjanleika í starfi þar sem tækifæri eru til símenntunar.

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hamraborg 10, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar