Alfreð
Alfreð
Alfreð

Fjármálastjóri

Við leitum að metnaðarfullum og árangursdrifnum fjármálastjóra.

Fjármálastjóri ber ábyrgð á öllum fjármálum fyrirtækisins og dótturfélaga og starfið krefst því fjölbreyttrar og víðtækrar þekkingar, allt frá daglegu bókhaldi til uppgjöra og stefnumótandi áætlana.

Fjármálastjóri heyrir beint undir framkvæmdastjóra og starfar náið með öðrum stjórnendum fyrirtækisins og starfsfólki. Viðkomandi fær einstakt tækifæri til að setja mark sitt á framtíðina sem hluti af alþjóðlegu fyrirtæki sem er í miklum vexti bæði innanlands og erlendis.

Alfreð hefur stækkað ört undanfarin misseri og við erum í stöðugri þróun. Auk þess að reka ráðningarkerfi undir merkjum Alfreðs, hérlendis sem erlendis, rekum við einnig Giggó, vettvang fyrir gigg-hagkerfið og eigum dótturfélagið Stokk Software sem sérhæfir sig í ráðgjöf, hönnun og þróun hugbúnaðarlausna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegri fjármála- og skrifstofustjórn

  • Bókhald, uppgjör og skattskil

  • Áætlanagerð og greiningar 

  • Launavinnsla

  • Reikningagerð, innheimtumál

  • Eftirlit og vöktun á mælikvörðum og skýrslugjöf til stjórnenda 

  • Samstarf og samskipti við endurskoðendur og aðra lykilaðila

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af fjármálastýringu; bókhaldi, uppgjörum og fjárhagsáætlanagerð

  • Reynsla af launavinnslu

  • Reynsla af greiningarvinnu og hæfni til að setja fram upplýsingar á skýran hátt

  • Sjálfstæði, skipulagshæfni og sveigjanleiki

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Nasl og drykkir
  • Íþróttastyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt23. apríl 2026
Umsóknarfrestur3. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Akralind 8, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar