
Fellaskóli Fellabæ
Fellaskóli í Fellabæ er grunnskóli þar sem lögð er áhersla á að efla bókvit, verkvit og siðvit jöfnum höndum. Í skólanum eru um 100 nemendur og þeim er skipt niður á þrjú stig; yngsta stig ( 1. – 4. bekk), miðstig ( 5. – 7. bekk) og unglingastig (8. – 10.) bekk. Á hverju stigi starfa kennarar og annað fagfólk saman í teymum. Við skipulag kennslu er horft til þess að nemendur eru á hverjum tíma mislangt komin á mismunandi sviðum þroska. Nemendur hafa einnig mismunandi styrkleika, áhugasvið og getu. Námi og öðru starfi skólans er ætlað að stuðla að alhliða þroska nemandans út frá forsendum og hæfileikum hvers og eins. Skólastarfið miðast við að stuðla jafnt að tilfinningalegum og félagslegum þroska sem og vitsmunalegum.

Fellaskóli auglýsir eftir kennurum.
Fellaskóli í Múlaþingi auglýsir eftir kennurum fyrir næsta skólaár.
Fellaskóli er 100 barna grunnskóli. Þar er starfsandinn góður og mörg tækifæri fyrir jákvæða, samstarfsfúsa og skapandi einstaklinga. Skólinn er í þróun með áherslur á teymisvinnu, útinám og lotubundið kennsluskipulag.
Fyrir skólaárið 2021 – 2022 eru auglýst eftirfarandi störf við skólann:
- Heimilisfræðikennara.
- Myndmenntakennara.
- Íþróttakennara.
- Umsjónarkennara á yngsta stig með reynslu eða nám í aðferðum Byrjendalæsi.
- Kennara í unglingastigsteymi.
- Sérkennslustjóra.
Flest þessi störf eru hlutastörf en til greina kemur að blanda störfum allt eftir hæfni og reynslu umsækjanda.
Menntunar- og hæfniskröfur
Kennsluréttindi.
Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
Faglegur metnaður.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Áhugi á að starfa með öðrum.
Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði við skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
Fylgjast með velferð nemenda og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitafélags.
Auglýsing birt14. apríl 2021
Umsóknarfrestur28. apríl 2021
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Einhleypingur 2, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/ísatkennari á unglingastig óskast í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt

Starfsmaður í stuðning/sérkennslu í leikskólanum Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Deildarstjóri - velkomin(n) í hópinn
Heilsuleikskólinn Kór

Viltu vera hluti af lifandi vinnustað og starfa í skemmtilegu vinnuumhverfi?
Leikskólar stúdenta

Leikskólakennari óskast í frábæran skóla
Vinagarður leikskóli

Kennarastaða við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Kennari óskast til starfa
Leikskólinn Sjáland

Þorláksskóli leitar að fagfólki eða stuðningsfulltrúa
Þorláksskóli

Kópahvoll óskar eftir kennurum
Kópahvoll