Félagsleg stuðningsþjónusta
Félagsleg stuðningsþjónusta

Félagsleg stuðningsþjónusta óskar eftir starfsfólki í vaktavinnu um kvöld og helgar í sumar

Sumarstarf í kvöld- og helgarþjónustu hjá félagslegri stuðningsþjónustu Árborgar.

Félagsleg stuðningsþjónusta miðar að því að styðja íbúa sveitarfélagsins til sjálfræðis og sjálfsbjargar og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður.

Um er að ræða tvö 56% störf í vaktavinnu. Unnið er viku í senn og viku frí á milli, frá mánudagskvöldi og út sunnudagskvöld.

Vinnutími er frá 18-22 virk kvöld og um helgar frá 8-13 og aftur frá 18-22.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun júní og unnið út ágúst, eða eftir nánara samkomulagi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að virkja og hvetja notendur til virkrar þátttöku og sjálfsbjargar eins og hægt er
  • Að veita aðstoð samkvæmt þjónustusamningi Árborgar, t.d. aðstoð við lyfjagjöf, öryggisinnlit, veita félagslegan og persónulegan stuðning við athafnir dagslegs lífs.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum í stuðningsþjónustu eða umönnunarstarfi æskileg
  • Félagsliða- eða sjúkraliðamenntun kostur
  • Sjálfstæði í starfi, vandvirkni og skipulagshæfni
  • Hæfni og virðing í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Hreint sakavottorð
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Ökuréttindi
Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grænamörk 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar