Búseti
Búseti
Búseti

Fagmenntaður pípari óskast til starfa

Búseti leitar að reynslumiklum og lausnamiðuðum einstaklingi 

Búseti óskar eftir að ráða löggiltan meistara í pípulögnum til starfa. Félagið vill bæta við í teymi félagsins nákvæmum og faglegum einstaklingi sem þarf að geta unnið vel sjálfstætt og í hópi. Viðkomandi þarf að hafa mikla þekkingu á lagnavinnu, hita- og tæknikerfum og úttektum. Hafa þjónustulund og geta tekið faglegar ákvarðanir á verkstað byggt á viðmiðum Búseta.

Búseti er húsnæðissamvinnufélag sem leggur upp úr faglegu viðhaldi og endurbótum á fasteignasafni sínu sem telur um 1.500 íbúðir. Allar fasteignir félagsins eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnin eru fjölbreytt og góður starfsandi ríkir hjá félaginu. Viðkomandi mun tilheyra teymi sem saman leitar hagkvæmra leiða hvað varðar fasteignaumsjónina. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og langtímahugsun þegar kemur að viðhaldi fasteigna Búseta.

Um er að ræða 100% framtíðarstarf hjá rótgrónu og traustu félagi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunarkröfur 

  • Meistararéttindi í pípulögnum
  • Löggilding til starfa sem pípari á Íslandi kostur

 

Hæfniskröfur 

  • Þekking á hitakerfum og tæknibúnaði fasteigna
  • Reynsla af viðhaldi atvinnu- eða íbúðarhúsnæðis 
  • Hæfni til að lesa teikningar og verklýsingar  
  • Góð tölvukunnátta og þekking til að vinna í viðhaldskerfum  
  • Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð 
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund nauðsynleg
  • Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði  
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði 

Persónulegir eiginleikar 

  • Áreiðanleiki og stundvísi  
  • Jákvætt viðmót  
  • Hæfni til að vinna undir álagi  
  • Samviskusemi og öryggisvitund  
  • Hæfni til samstarfs í teymi  

Vinnutími og starfsaðstæður 

  • Dagvinna frá 08:00 til 16:00 (15:00 á föstudögum) 
  • Útköll geta fylgt starfinu
  • Starfið fer einkum fram í íbúðarhúsnæði og tæknirýmum fasteigna 
  • Í höfuðstöðvum Búseta er mötuneyti þar sem starfsfólk borðar saman í hádeginu 
  • Starfsmaðurinn hefur bifreið til afnota tengt hlutverkinu

 

Önnur skilyrði 

  • Gilt ökuskírteini - B 
  • Hreint sakavottorð 
Auglýsing birt24. september 2026
Umsóknarfrestur23. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Síðumúli 10, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Meistarapróf í iðngreinPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.PípulagningarPathCreated with Sketch.PípulagnirPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar