Fagkaup þjónustudeild
Fagkaup þjónustudeild
Fagkaup þjónustudeild

Fagkaup óskar eftir þjónustu og sölufulltrúum

Laus sumarstörf hjá Fagkaupum

Fagkaup óskar eftir að ráða öflugt starfsfólk í bæði vöruhús og verslanir félagsins.

Störfin eru fjölbreytt og lifandi þar sem starfsfólk vinnur saman sem ein heild.

Í vöruhúsum snýst starfið um að taka til pantanir, taka á móti vörum, halda vöruhúsi hreinu og snyrtilegu og aðstoða viðskiptavini og samstarfsfólk. Lyftararéttindi er kostur. Þjónustulund og vinnusemi er skilyrði.

Í verslunum eru verkefnin m.a. sölumennska og þjónusta til viðskiptavina. Móttaka á vörum, stilla upp vörum og halda verslun snyrtilegri. Þjónustulund, snyrtimennska og frumkvæði er skilyrði.

Ath: Möguleiki er á áframhaldandi starfi með skóla eftir sumarið!

Fagkaup rekur verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindra, Vatn & veitur, S. Guðjónsson, Áltak, K.H. Vinnuföt, Varma og Vélaverk, Ísleif, Hagblikk, Fossberg og DS lausnir.

Höfuðstöðvar félagsins eru við Klettagarða 25 í Reykjavík en starfseiningar eru víða t.d. á Akureyri, á Selfossi, Grundartanga, Reyðarfirði, Reykjanesbæ, Hafnafirði og Kópavogi

Helstu verkefni og ábyrgð

Í vöruhúsum: 

  • Vörutínsla
  • Vörumóttaka
  • Áfyllingar
  • Tiltekt og önnur tilfallandi störf í vöruhúsi

Í verslunum: 

  • þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina 
  • Almenn sölustörf 
  • Tiltekt og áfylling í verslun 
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Stundvísi og áreiðanleiki 
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Öflugt félagslíf 
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.Útkeyrsla
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar